
Matvælastofnun varar við Shirin rósalaufate frá Íran sem Istanbul market flytur inn frá Hollandi vegna aðskotahluta sem fundust í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað eina framleiðslulotu með aðstoð heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður.
Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Shirin
- Vöruheiti: Rósalaufate (Rosa X Damascena / Rosenblätter tea / Rose Leaf Tea)
- Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 20.12.2022
- Strikamerki: 8719322002785
- Nettómagn: 40 g
- Innflytjandi á EES svæði: All4trade B.V., Hollandi
- Upprunaland: Íran
- Innflytandi: Istanbul Market, Grensásvegi 10.
- Dreifing: Istanbul Market, Grensásvegi 10.
Neytendur sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila
henni gegn endurgreiðslu í verslun Istanbul Market að Grensásvegi 10.
Forsíðumynd/ af netinu