Sjúkratryggingum Íslands er nú heimilt að veita styrki til kaupa á næringaruppbót fyrir fyrirbura sem fæðast fyrir 32 vikna meðgöngu og þarfnast næringaruppbótar þar til þeir hafa náð 40 vikna meðgöngualdri.

Reglugerð heilbrigðisráðherra sem kveður á um þetta hefur tekið gildi.

Kostnaður foreldra sem hingað til hafa greitt næringaruppbótina að fullu nemur um 60.000 krónum. Styrkur samkvæmt reglugerðinni nemur 57.300 krónum en það sem út af stendur greiða foreldrarnir sjálfir.

Skoða á vef Stjórnarráðsins