Tölvupóstur barst tæknideild Fjallabyggðar frá Samgöngustofu þess efnis að skráningin á Siglufjarðarflugvelli sem lendingarstað væri runnin út og þyrfti að endurnýja ef vilji er til að halda skráningunni.

Endurnýjuninni fylgir ekki kostnaður fyrir sveitarfélagið en samkv. úttekt á flugvellinum frá júlí 2024 eru nokkur atriði sem sett var út á og þarf mögulega að lagfæra næsta sumar. Þessi atriði voru flest minniháttar og sneru helst að merkingum á brautum, gróðri í kringum merkingar o.þ.h. atriði.

Bæjarráð felur tæknideild að endurnýja skráningu Siglufjarðarflugvallar sem lendingarstað ásamt því að taka saman minnisblað um kostnað vegna úrbótaatriða.

Málinu að öðru leyti vísað til gerðar fjárhagsáætlunar 2025.