Límónu sýrður rjómi:
- 1 bolli sýrður rjómi
- 1 msk fínrifið límónuhýði (lime)
- ¼ bolli ferskur límónusafi
- 2 msk hakkað ferskt kóríander
- 1 msk hrísgrjónaedik (rice vinegar)
- Gróft salt
Setjið öll hráefnin í skál og hrærið þeim saman. Smakkið til með salti. Setjið plastfilmu yfir skálina og geymið í kæli í að minnsta kosti 1 klst. eða upp í 1 sólarhring.
Fylling og samsetning:
- 2 msk ólívuolía
- 900 g nautahakk
- 1 laukur, hakkaður
- 6 hvítlauksrif, fínhökkuð
- 1 dós heilir tómatar (400 g)
- 1 flaska Heinz chilisósa
- ¼ bolli Worcestersósa
- 3 msk chiliduft (ég notaði 2 msk af sterku mexíkósku chilidufti)
- 1 msk hvítlauksduft (ath. ekki hvítlaukssalt!)
- 1 msk laukduft
- 1 msk púðursykur
- 1 msk cumin
- 12 stökkar tacoskeljar, hitaðar
- rifinn cheddar ostur
- iceberg
- ferskt salsa
- ferskt kóriander
- lime bátar
Hitið 1 msk af ólívuolíu á pönnu yfir miðlungsháum hita. Setjið nautahakkið á pönnuna og steikið þar til allt hakkið er steikt, um 5 mínútur. Takið af pönnunni og leggið til hliðar.
Bætið 1 msk af ólívuolíu á pönnuna og setjið lauk og hvítlauk á hana. Steikið laukana þar til þeir byrja að brúnast, um 5 mínútur. Passið að hafa ekki of mikinn hita á pönnunni.
Hitið ofn í 200°.
Bætið tómötum á pönnunna og brjótið þá í sundur. Látið sjóða við vægan hita í 8-10 mínútur, eða þar til sósan byrjar að þykkna. Bætið nautahakki, chilisósu, Worcestersósu, chilidufti, hvítlauksdufti, laukdufti, púðursykri og cumin á pönnuna og blandið öllu vel saman. Látið sjóða í 10-12 mínútur við vægan hita og hrærið reglulega í.
Setjið fyllinguna í eldfast mót (sirka 20×30 cm) og bakið i ofninum í 30-40 mínútur.
Berið fyllinguna fram í heitum tacoskeljum með rifnum cheddar osti, iceberg, salsa, kóríander, límónu sýrðum rjóma og límónubátum.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit