Fjallabyggð verður með smíðaskóla fyrir 7-12 ára börn (árgangur 2010 – 2015) á tímabilinu  11. júlí – 21. júlí á Siglufirði og í Ólafsfirði.

Smíðaskóli fyrir 7 – 12 ára (árgangur 2010-2015) hefur verið rekin undanfarinn ár og gengið vel.  

Smíðavellirnir verða opnir í tvær vikur frá 11. – 21. júlí , mánudaga, þriðjudaga,  miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 10:00-12:00 í Ólafsfirði  og á Siglufirði sömu daga frá 13:00 – 15:00.

Börn sem sækja smíðavellina eru á ábyrgð foreldra og er frjálst að koma og fara á þeim tíma sem smíðavellir eru opnir.  Börnin fá timbur og nagla á staðnum en þurfa sjálf að koma með hamar og sög.

Verkefnið er í umsjón yfirmanns vinnuskóla Fjallabyggðar. 

Staðsetning:

Ólafsfjörður: Á sléttunni norðan við Ólafsveg, (bak við GRÆNU blokkina).
Siglufjörður: Á túninu við Mjölhúsið 

Upplýsingar veitir Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri í síma 844 5819, rikey@fjallabyggd.is og Haukur Sigurðsson yfirmaður vinnuskóla í síma 863 1466, haukur@fjallabyggd.is