Matvælastofnun óskar að ráða metnaðarfullan og jákvæðan einstakling í starf héraðsdýralæknis Norðvestur-umdæmis.
Um er að ræða fullt starf með áherslu á stjórnun og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Héraðsdýralæknir stýrir starfsmönnum umdæmis en meginhlutverk starfsmanna er að sinna eftirliti. Héraðsdýralæknir vinnur að aukinni velferð og bættu heilbrigði og sjúkdómavörnum dýra og manna í umdæminu og stýrir stjórnvaldsaðgerðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppbygging á umdæminu og innleiðing stefnu Matvælastofnunar
- Sjúkdómavarnir og viðbrögð við smitsjúkdómum dýra
- Yfirumsjón með eftirliti með heilbrigði og velferð dýra í umdæminu
- Yfirumsjón með eftirliti með frumframleiðslu matvæla, slátrun, vinnslu dýraafurða og annað matvæla- og fóðureftirlit í umdæminu
- Framkvæmd opinbers eftirlits
- Þátttaka í teymum sem varða starfið
- Skipulag vaktþjónustu í umdæminu
- Ábyrgð á rekstri umdæmisskrifstofu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Dýralæknismenntun og íslenskt dýralæknaleyfi
- Reynsla af stjórnun starfsfólks æskileg
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er æskileg
- Reynsla af opinberu eftirliti er æskileg
- Reynsla af hefðbundnum dýralæknastörfum er æskileg
- Öguð vinnubrögð og geta til að starfa sjálfstætt
- Skipulags- og samskiptahæfileikar
- Góð tölvu- og tungumálakunnátta
- Gott vald á íslensku
- Ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir í síma 530 4800 og sigurborg.dadadottir@mast.is.
Sótt er um starfið Starfatorgi. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og afrit af prófskírteinum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2022. Vakin er athygli á því að umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Dýralæknafélags Íslands.