Vegna viðhalds- og framkvæmda verða Strákagöng lokuð fyrir umferð daglega frá kl. 20:00 til 24:00 frá og með sunnudeginum 12. janúar og a.m.k föstudagsins 17. janúar.

Uppsafnaðri umferð verður hleypt í gegn kl. 22:00 og 24:00 og eftir það má búast við töfum á umferð vegna vinnu.

Vegfarendur eru hvattir til að skipuleggja ferðir sínar í samræmi við lokanir.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilning og tillitsemi.

Vegagerðin.