Vegna viðhalds á sundlaugarsvæði mun sundlaugin á Dalvík verða lokuð frá 3. maí til mánaðamóta maí/júní.

Framkvæmdatími fer eftir því hvort veður verður hagstætt til framkvæmda og getur því verktími breyst miðað við þessar áætlanir.

Húsið verður opið að öðru leyti meðan á framkvæmdum stendur (rækt og íþróttatímar, þ.e. svo framarlega sem það verður í lagi út frá sóttvarnarreglum).

Skoða á vef Dalvíkurbyggðar