Hin árlega Fyrirtækjakeppni hestamannafélagsins Glæsis á Siglufirði var haldin sunnudaginn 6. október sl.

Knapar á ýmsum aldri sýndu þá listir sínar á hinum ferfættu vinum sínum og kepptu fyrir hin ýmsu fyrirtæki sem styrktu félagið í staðinn.

Allir fengu verðlaun að keppni lokinni.

Svo var boðið í kaffi og kökur þar sem Tóti trúbador lék ljúfa tóna undir.

Heimild og mynd/Frétta- og fræðslusíða UÍF