Frumvarp dómsmálaráðherra um sameinað embætti sýslumanns var samþykkt á Alþingi á mánudaginn. Með samþykkt frumvarpsins verða núverandi níu sýslumannsembætti sameinuð í eitt öflugt embætti sýslumanns sem starfa mun um land allt.
„Við erum að færa sýslumannskerfið inn í nútímann. Þjónusta ríkisins á ekki að ráðast af póstnúmeri. Með einu sameinuðu embætti tryggjum við jafnræði, aukna skilvirkni og sterkari stjórnsýslu um allt land. Þetta er skýr pólitísk ákvörðun um að nýta betur sameiginlega fjármuni og setja hagsmuni almennings í forgang. Með þessum lögum fækkum við stofnunum um 5%,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Markmið lagasetningarinnar er m.a. að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu sýslumanns óháð búsetu, auka skilvirkni í rekstri og stjórnsýslu, stuðla að auknu framboði stafrænnar þjónustu og efla starfsemi embættisins á landsbyggðinni með fjölgun verkefna og starfa.
Eitt umdæmi og áhersla á þarfir íbúa
Frumvarpið kveður á um að landið verði eitt umdæmi og að starfsemin verði rekin með þeim hætti að þjónustan sé samræmd, skilvirk og í forgrunni fyrir almenning. Með samþykkt laganna verður embættið með 27 starfsstöðvar um allt land, sem tryggir áfram staðbundna þjónustu þrátt fyrir breytingar á stjórnkerfi sýslumannsembættanna.
Í frumvarpinu er hlutverki sýslumanns gerð greinargóð skil og áhersla lögð á að embættið sinni nútíma- og framtíðarþörfum í þágu allra landsmanna. Þar er lögð rík áhersla á að skipulag þjónustunnar taki mið af þörfum íbúa og að embættið stuðli að þróun og auknu aðgengi að opinberri þjónustu í gegnum stafrænar lausnir.
Undirbúningur innleiðingar hefst þegar í stað og nýtt embætti tekur formlega til starfa 1. janúar 2027.
