Það er fallegt um að líta í Dalvíkurbyggð þessa dagana og margt gert til að fegra enn frekar. Margt má laga fyrir góða daga eins og stjórn Fiskidagsins mikla komst svo vel að orði.
Á landsvísu hefur verið í gangi svokallað TAKK – verkefni sem er tileinkað Frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi forseta Íslands og því að í ár séu 40 ár síðan hún var kjörin forseti Íslands. Við viljum eindregið hvetja alla til að taka mynd af sér við vegginn sem er staðsettur á Víkurröst. Tilvalið er síðan að deila myndinni með myllumerkjunum #tilfyrirmyndar eða #takkvigdís.
TAKK – vegginn á Víkurröst gerðu þær Sigríður Björk og Svanbjörg, en verkefnið var partur af verkefnavinnu listahópsins, átakshóps sem Dalvíkurbyggð setti á laggirnar fyrir sumarið.
Þá gerðu þær einnig regnbogavegg á gamla þvottaplaninu hjá Sæplast – svokallað hamingjuplan.
Af dalvikurbyggd.is