Starfsstöður í boði
• Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar.
• Starfstöðvar eru á Siglufirði og Ólafsfirði.
• Kona í 80% starf, aðalstarfsstöð Ólafsfirði
• Kona í 90% starf, aðalstarfsstöð Siglufirði
• Karl í 100% starf, aðalstarfsstöð Ólafsfirði
• Karl í 100% starf, Ólafsfirði og Siglufirði
• Allir starfsmenn verða að vera reiðubúnir að vinna á báðum starfstöðvum.

Helstu verkefni og ábyrgð
• Eftirlit og gæsla í sundlaug.
• Almenn afgreiðsla og uppgjör í lok vaktar.
• Þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar.
• Almenn þrif og annað sem til fellur.

Menntunar- og hæfnikröfur
• Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.
• Gerð er krafa að viðkomandi standist hæfnispróf samkvæmt. reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
• Góð þjónustulund og lipurð í samskiptum.
• Góð kunnátta í íslensku er skilyrði, enska og þriðja tungumál er kostur.

Vinnutími: Um er að ræða morgunvaktir kvöldvaktir og helgarvaktir.
Launakjör samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknir skulu sendar með tölvupósti á skarphedinn@fjallabyggd.is og skal umsókn fylgja starfsferilskrá með umsagnaraðilum og kynningarbréf. Umsækjendur þurfa að gefa leyfi til upplýsingaöflunar úr sakaskrá komi þeir til greina í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með: 31. mars 2023. og verður öllum umsóknum svarað.

Nánari upplýsingar veitir Skarphéðinn Þórsson, forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Fjallabyggðar, netfang: skarphedinn@fjallabyggd.is og farsími 866 9136