Nú er stækkandi straumur og verður stórstreymt næstkomandi sunnudag segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Samhliða gera veðurspár ráð fyrir að í dag, föstudag, snúist vindur í norðan og norðvestan hvassviðri eða storm og má því gera ráð fyrir talsverði ölduhæð fyrir norðan- og norðaustanverðu landinu næstu daga með tilheyrandi áhlaðanda, og þá um leið hærri sjávarstöðu en sjávarfallaspár gefa til kynna.

Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum.

Mynd/af síðu Landhelgisgæslunnar