Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu frá hellinum á Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.
Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum frá helli sínum í Angostura gljúfri á Kanaríeyjum.
Þau hjónin spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum.
Einnig verður uppskrift vikunnar á sínum stað.
Leikið verður nýútkomið lag sem Rúnar Eff var að senda frá sér.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is