Í dag kl. 13:00 er þátturinn Tíu Dropar á FM Trölla í beinni útsendingu frá Kanaríeyjum.
Það eru “Tröllahjónin” Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum. Þau fara um víðan völl, kíkja á helstu fréttirnar á trolli.is, spila allskonar lög og uppskrift vikunnar verður á sínum stað og allt getur gerst.
Í dag verða tvö ný lög leikin í þættinum.
Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13:00 – 15:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.
Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.
Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is