Þessa dagana er Gallup að framkvæma könnun um ýmis atriði sem snerta kjör, viðhorf og starfsaðstæður félagsmanna Einingar-Iðju og AFLS starfsgreinafélags.
Könnunin er jafnframt happdrættismiði því allir sem taka þátt geta unnið veglega vinninga.
Í síðustu viku voru sett bréf í póst á þá 3.000 félagsmenn sem valdir voru handahófskennt úr félagaskrám þessara tveggja félaga, 1.500 frá hvoru félagi. Félagið þitt notar niðurstöður könnunarinnar til að móta starfsemi sína og til að berjast fyrir bættum kjörum fyrir félagsmenn.
Það er von félagsins að þeir sem valdir voru til þátttöku gefi sér tíma til að svara þegar leitað verður til þeirra því það er áríðandi að fá sem nákvæmastar niðurstöður og að allir svari svo hægt verði að nýta niðurstöðurnar í þágu þekkingar og til hagsbóta fyrir félagsmenn.
Starfsmenn frá Gallup munu hringja í þessa félagsmenn. Bæði verður hægt að svara símleiðis og í gegnum netið með því að fara inn á vefslóð sem gefin er upp í bréfinu sem félagsmennirnir fengu og nota lykilorð sem þeim var úthlutað.
Niðurstöður fyrri kannana má finna hér
Þátttakendur strax í happdrættispott!
20 þátttakendur lenda strax í happdrættispotti, vinningshafar fá tilkynningu fljótlega eftir að búið er að svara könnuninni. Um er að ræða gjafakort að verðmæti kr. 15.000.
Átta veglegir vinningar eru í boði þegar könnuninni er lokið. Tveir vinningar að upphæð kr. 150.000 og tveir kr. 50.000 auk fjögurra vikudvala í orlofsíbúðum félaganna.
Þín svör skipta máli – takk fyrir að taka þátt!