Tónleikakvöld verður haldið í Alþýðuhúsinu á Siglufirði við Þormóðsgötu 11–19 föstudaginn 16. janúar klukkan 20:00, þar sem tveir ólíkir en áhugaverðir tónlistarheimar mætast.
Um er að ræða tónleika með Þorsteini Kára og verkefninu Pitenz, þar sem áhersla er lögð á fjölbreytni, tilraunagleði og persónulegan hljóm.
Þorsteinn Kári gaf á síðasta ári út sína aðra plötu, Hvörf, sem hefur vakið athygli fyrir blöndu indí- og rafrænnar tónlistar. Lögin einkennast af næmu andrúmslofti og hugleiðandi tónum þar sem melódía og rafræn áferð fléttast saman á áhrifaríkan hátt.
Á sama kvöldi stígur á svið Pitenz, tónlistarverkefni Áka Frostasonar, sem hefur markað sér sérstakan sess fyrir stöðuga þróun og breytingar. Upphaflega sprottið úr þyngri dimmbylgjutónum hefur verkefnið færst í átt að synth-popi og þaðan yfir í melankólíska og hedóníska ný-dans tónlist. Þar fá rave-áhrif, gjörningar og ballöður að njóta sín, bæði með og án söngs, og erfitt er að spá fyrir um hvert kvöldið leiðir áheyrendur.
Miðaverð er 2.000 krónur og er greitt við inngang. Enginn posi er á staðnum. Tónleikarnir eru hluti af öflugu menningarstarfi í Alþýðuhúsinu sem nýtur stuðnings Fjallabyggð og SSNE, sem bæði leggja sitt af mörkum til að efla tónlistar- og menningarlíf á Siglufirði.
Samsett mynd: skjáskot úr myndbandi og Spotify



