Tvær heimsóknir í viku leyfðar á hjúkrunar- og sjúkradeildum HSN

COVID-19 smitum fer fækkandi í samfélaginu og einnig fækkar fjölda þeirra sem eru í sóttkví. Ákveðið hefur verið að opna aftur fyrir heimsóknir á hjúkrunar- og sjúkradeildir HSN og gilda eftirfarandi heimsóknarreglur frá og með 18. nóvember 2020:

  • Aðeins einn gestur má heimsækja hvern íbúa tvisvar í viku á fyrir fram ákveðnum heimsóknartíma hverrar deildar í samráði við deildarstjóra. Við óskum eftir því að sá hinn sami sé nánast í sjálfskipaðri sóttkví og passi sig sérstaklega.
  • Gestir beri grímur á leið sinni innan heimilis, frá útidyrum að vistarveru ættingja og mega ekki staldra við í sameiginlegum rýmum heimilis.
  • Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa eins og hægt er.
  • Undanþága er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf að fá leyfi deildarstjóra.
  • Viðkomandi gestur þarf að spritta hendur um leið og komið er inn, í upphafi heimsóknar.
  • Að heimsókn lokinni farið þá beint út án þess að stoppa og spjalla á leiðinni. Vinsamlegast sprittið hendur við brottför.
  • Mælst er til þess að íbúar fari ekki í heimsóknir á meðan bylgja faraldurs gengur yfir og eru þeir í staðinn hvattir til að hitta sína nánustu í garði heimilis eða fara í bíltúr með sínum nánasta.

Vinsamlega kynnið ykkur eftirfarandi reglur:

  1. Ekki koma í heimsókn ef þú ert í einangrun eða sóttkví.
  2. Ekki koma í heimsókn ef þú ert að bíða eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  3. Ekki koma í heimsókn ef þú ert með flensueinkenni (kvef, hósta, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl).
  4. Ekki koma í heimsókn ef þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

Nánara fyrirkomulag og upplýsingar varðandi heimsóknir má finna á undirsíðum starfsstöðva hér:

Blönduós

Fjallabyggð

Húsavík – Skógarbrekka

Húsavík – Sjúkradeild

Sauðárkrókur – Deild I og II

Sauðárkrókur – Deild III, V og VI