Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 30. maí að heimila T.ark arkitektum f.h. Samkaupa hf. og KSK eigna ehf. að vinna breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Siglufjarðar með það að markmiði að útbúa nýja lóð fyrir verslunarkjarna sem mun m.a. hýsa nýja verslun Samkaupa hf. ásamt öðrum verslunum og/eða þjónustu.
Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar 29. október og kynnt á opnum íbúafundi þann 6. nóv. sl. Athugasemdafrestur er frá og með 13. nóvember 2024 til og með 2. janúar 2025.
Alls bárust skipulagsgátt 32 umsagnir vegna fyrirhugaðrar Samkaupsbyggingar og mun Trölli.is birta allar innsendar umsagnir næstu vikurnar.
Sjá fyrri umsagnir: HÉR
Tuttugasta og fimmta umsögn birt 02.01.2025.
Þórir Gíslason
Ég sem gestur á Siglufirði í fjölmörg skifti mótmæli þessu skipulagi verslana á Tjaldstæði Siglufjarðar við Höfnina. Þetta eiðileggur algerlega andann og upplifunina af því að heimsækja Bæinn. Ég mótmæli harðlega þessari hugmind og ef af verður mun gestakomun stórfækka. Nema það sé tilgangurinn enn því trúi ég ekki að óreindu.
Mynd/úr myndasafni Trölla