Fyrir lágu aflatölur fyrir Fjallabyggðarhafnir frá 1. janúar til 27.maí 2025 á 151. fundi hafnarstjórnar Fjallabyggðar.

Á Siglufirði hefur verið landað umtalsvert minni afla heldur en á sama tíma á síðasta ári en á tímabilinu nú hefur verið landað um 3.465 tonnum í 408 löndunum en á sama tíma í fyrra hafði verið landað um 4.478 tonnum í 422 löndunum.

Í Ólafsfirði hefur jafnframt verið landað minna. Í fyrra var búið að landa þar 124 tonnum í 98 löndunum en nú hefur verið landað 45 tonnum í 39 löndunum á sama tímabili.