Ungmennaráð Fjallabyggðar ræddi ýmis málefni á 45. fundi sínum, sem varða hagsmuni og daglegt líf ungmenna í sveitarfélaginu.
Meðal annars var rætt um skólamat og mikilvægi þess að nægjanlegt magn sé ávallt í boði. Þá kom fram að nefndarmenn hefðu orðið varir við að mat væri stundum hent af nemendum.
Í því samhengi voru ræddar hugmyndir um að efna til keppni milli bekkja um að draga úr matarsóun, með mögulegum umbunum, svo sem pizzaveislu fyrir þann bekk sem stæði sig best.
Einnig var fjallað um fyrirhugað ungmennaþing á Húsavík í apríl, samstarf ungmennaráða á svæðinu og önnur tengd málefni.
Í ungmennaráði Fjallabyggðar eru þau:
Hilmir Darri Kristinsson Aðalmaður
Björn Helgi Ingimarsson Aðalmaður
Jasmín Þóra Harrimache Aðalmaður




