Nýr vefur Akureyrarbæjar, www.akureyri.is, hefur verið tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna í flokknum Opinber vefur ársins.

Verðlaunin eru veitt af Samtökum vefiðnaðarins (SVEF) sem eru fagsamtök þeirra er starfa í vefmálum á Íslandi. 

Verðlaunaafhendingin fer fram í tuttugasta og fimmta sinn í Hörpu þann 26. mars næstkomandi.