Þriðja ungmennaþing Barnaheilla, sem haldið var í Hofi fimmtudaginn 5. mars, var vel sótt og gekk vel.

Um 40 ungmenni frá Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla, Oddeyrarskóla, Síðuskóla og Menntaskólanum á Akureyri tóku þátt í þinginu, sem fjallaði um kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga.

Barnaheill fengu styrk frá dómsmálaráðuneytinu til að halda ungmennaþing á sex stöðum á landinu í febrúar og mars. Fyrstu þingin voru haldin á Suðurnesjum og í Hafnarfirði, það þriðja var á Akureyri, og síðustu þrjú ungmennaþingin verða haldin 16. mars á Ísafirði, 24. mars á Egilsstöðum og 26. mars á Selfossi.

Markmið þinganna er að fá innsýn í upplifun og viðhorf ungs fólks og heyra hvaða lausnir það sér til að minnka ofbeldi.

Mynd: Akureyrarbær