FM Trölli stóð fyrir opnum framboðsfundi á Rauðku í dag. Fundurinn var vel sóttur og fundargestir duglegir að varpa fram spurningum til fulltrúa framboðanna hér í Fjallabyggð. FM Trölli var með fundinn í beinni útsendingu. Hér neðar má finna upptöku frá fundinum sem hægt er að hlusta á og spóla fram og til baka.
FM Trölli þakkar fulltrúum og gestum fyrir góða mætingu og málefnalega umræðu. Vonandi verður þetta til að auðvelda kjósendum valið í kjörklefanum þann 26. maí næstkomandi.
Hér má hlusta á upptöku frá fundinum
Texti og myndir: Kristín Sigurjónsdóttir