Í dag, föstudaginn 22. desember 2023 eru vetrarsólstöður.
Daginn fer að lengja strax á morgun, þá um örfáar sekúndur og svo hraðar eftir það. Norðanlands er birtutími um klukkustund skemmri en syðra.
Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur.
Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, það er hættir að hækka eða lækka á lofti.
Heimild: Wikipedia og Veðurstofa Íslands
Vetrarsólstöður
- 2023 – 22. Desember – kl. 03:27
- 2024 – 21. Desember – kl. 09:20
- 2025 – 21. Desember – kl. 15:03