Norðvestan hríð eða stórhríð á norðaustanverðu landinu eftir hádegi í dag, og færð spillist líklega á fjallvegum, t.d. Möðrudalsöræfum, Fagradal og Fjarðarheiði.
Einnig snarpar vindhviður við fjöll, yfir 35 m/s, austur af Öræfum og á sunnanverðum Austfjörðum á sama tíma. Dregur úr vindi og ofankomu seint í kvöld. Áfram frost um allt land.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Suðaustan 13-20 m/s með snjókomu í fyrstu og síðan rigningu eða slyddu, en hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hlýnandi veður, hiti 0 til 7 stig síðdegis, mildast syðst. Dregur úr vindi seinnipartinn, sunnan 8-15 um kvöldið og kólnar vestanlands með éljum.
Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 og él sunnan- og vestanlands, en léttskýjað annars staðar. Frost víða 0 til 5 stig.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt 3-10 og él, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Suðaustan 8-15 og snjókoma á suðurhelmingi landsins um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, kaldast fyrir norðan.
Á föstudag:
Sunnan 5-13, en 13-18 á vestanverðu landinu. Snjókoma eða él, en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti breytist lítið.
Á laugardag:
Hvöss suðaustanátt með snjókomu eða slyddu, en rigning um tíma á láglendi. Hlýnar í veðri.




