
Laugardaginn 7. júní kl. 14.00 opnar Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson sýningu í Kompunni, Alþýðuhúsinu á Siglufirði sem ber yfirskriftina ” Það sem teygir sig í báðar áttir “
Sýningin er opin daglega frá kl. 14.00 – 17.00 til 21. júní. Enginn aðgangseyrir og öll velkomin.
Það sem teygir sig í báðar áttir
Í landinu sem er ekki til – ekki lengur, ekki enn – er loftslagið milt, það gera hafstraumarnir og hnattstaðan. Landið byggja ættræknir sælkerar og þeim þykir gott að vera heima hjá sér. Suma daga er enginn á ferli. Og þegar enginn er á ferli og það er líka logn er eins og enginn hafi nokkurn tíma verið þar á ferli.
Húsin kyndir fólkið með gasi, landið er ríkt af auðugum málmum, þjóðarblómið er gult og byrjar á s-, og í tungumálinu er til sægur af samheitum yfir aðgerðaleysi – fleiri en við eigum og nær öll neikvæð.
En þó fólkið í landinu sé duglegt, eru aðalatvinnuvegir þjóðarinnar óljósir. Aðspurt um þá brosir fólkið áður en það verður hugsi og segist svo ekki visst. Í eina tíð snerist allt um fiskinn, áður áburðarverksmiðjuna, síðar fiskinn aftur, svo álverið.
Fólkið er dellufólk og á meðan árin líða í aðra hvora áttina hlaðast dagsverkin, deiluskipulögin og mannvirkin upp áður en þau sverfast síðan aftur út í ekkertið. Í dag binda margir vonir sínar við hobbýhunangsbúskap og framleiðslu ýmissa húsgagna úr basti sem hafa vakið athygli á evrópskum markaði.
Ekki hefur verið settur á fót viðskiptahraðall í landinu heldur fá hlutirnir að ganga hægt fyrir sig. Aðeins í gær lauk tökum á fyrstu kvikmyndinni sem tekin var upp í landinu. Hún byggir á þjóðsögu um mauraþúfu og segir frá nánu sambandi lítillar stúlku við afa sinn.
Texti eftir Sölva Halldórsson
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (f. 1997) leggur megináherslu á eigin sköpunarferli sem einkennist að miklu leyti af tilraunamennsku. Hugmyndir þurfa sinn tíma og rými til að blómstra, því kýs Vilhjálmur að festa sig ekki við einn ákveðin miðil. En sjálf verkin verða til út frá ýmsum kveikjum; einhverju eftirtektarverðu í göngutúr, eða samræðu. Kveikjurnar spretta út frá forvitni og áhuga Vilhjálms fyrir umhverfi sínu, fyrir einhverju sem hann skilur ekki alveg sjálfur eða vill skilja betur. Vilhjálmur útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022. Hann er meðstofnandi listasamlagsins post-dreifing og er í hljómsveitunum korter í flog og glupsk. Í desember 2023 hélt Vilhjálmur sína fyrstu einkasýningu Snúningshraði í Kling&Bang.

Sunnudagskaffi með skapandi fólki.
Sunnudaginn 8. júní kl. 14.30 verður Samúel Hansen með píanótónleika og spjall á Sunnudagskaffi með skapandi fólki í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Komið og upplifið hljóðheim norræns djass með Sænsk-Ameríska píanóleikaranum Samúel. Hann lærði ́Symbolic Systems ́ í Stanford Háskólanum í Kalifnorínu og er búsettur hluta úr ári á Siglufirði. Á fyrsta einleiksflutningi hans á Siglufirði fléttar hann saman frumsömdum tónverkum og ferskum útsetningum á skandinavískum laglínum,
innblásnar af náttúru og naumhyggju. Notaleg stund þar sem kaffiveitingar eru í boði, öll velkomin. Viðburðurinn er án aðgangseyris en tekið er við frjálsum framlögum.
Myndir/aðsendar