Akureyrarbær vinnur að gerð deiliskipulags fyrir Hrísey, svæði ofan byggðar.

Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og er markmið skipulagsvinnunnar að útfæra samræmt og heildstætt skipulag fyrir svæðið.

Megináhersla er lögð á að auka framboð fjölbreyttra íbúðalóða í Hrísey, ásamt því að fjölga athafnalóðum ofan byggðarinnar. 

Hér má nálgast tillöguuppdrátt fyrir svæðið og greinargerð hér.

Ábendingum þar sem nafn og kennitala koma fram má skila í gegnum Skipulagsgátt.

Frestur til að koma á framfæri ábendingum við tillöguna er til og með 2. júlí 2025.