Þjóðskrá hefur tekið saman vinsælustu nöfn á Íslandi árið 2024 meðal nýfæddra barna sem voru samtals 4.346 einstaklingar.
Emil og Jökull voru vinsælustu fyrstu eiginnöfn meðal nýfæddra drengja á síðasta ári en 31 dreng var gefið nafnið Emil og jafnmörgum drengjum nafnið Jökull. Næst vinsælustu nöfnin meðal drengja voru Óliver og Matthías.
Aþena og Embla voru vinsælustu nöfnin meðal nýfæddra stúlkna sem fyrsta eiginnafn, en 22 stúlkum var gefið nafnið Aþena og jafnmörgum nafnið Embla. Nöfnin Emilía, Birta og Sara koma þar á eftir en 20 stúlkum var gefið hvert nafn.
Hægt er að sjá nánara niðurbrot í Þjóðskrárgáttinni og einnig fletta upp öllum nöfnum og sjá hversu margir heita því nafni.
Vinsælustu fyrstu eiginnöfnin 2024
Samanburður milli ára
Ef horft er á samanburð á milli ára má sjá að drengjanöfnin Emil og Jökull taka fyrsta sætið af Birni. Matthías tekur stökk úr 41. sæti í fjórða og Birkir hækkar einnig verulega. Hvað stúlkurnar varðar má sjá að Aþena og Embla taka fyrsta sætið af Emilíu. Nöfnin Emilía, Birta og Sara raða sér í sætin þar á eftir. Hástökkið á topp 10 listanum er nafnið Júlía sem fer úr 33. sæti í það 7. – 10.
Nafn | 2024 | 2023 | Breyting |
Emil | 1-2 | 2 | |
Jökull | 1-2 | 8 | |
Óliver | 3 | 5 | |
Matthías | 4 | 41 | |
Birnir | 5 | 1 | |
Alexander | 6-8 | 9 | |
Aron | 6-8 | 6 | |
Styrmir | 6-8 | 15 | |
Viktor | 9-11 | 7 | |
Birkir | 9-11 | 52 |
Nafn | 2024 | 2023 | Breyting |
Aþena | 1-2 | 5 | |
Embla | 1-2 | 4 | |
Emilía | 3-5 | 1 | |
Birta | 3-5 | 18 | |
Sara | 3-5 | 2 | |
Matthildur | 6 | 16 | |
Bríet | 7-10 | 13 | |
Andrea | 7-10 | 21 | |
Hekla | 7-10 | 12 | |
Júlía | 7-10 | 33 |
Algengustu fyrstu eiginnöfnin
Algengustu fyrstu eiginnöfnin á landinu má sjá hér að neðan og er röðun nafna lítillega breytt á milli ára. Með algengustu fyrstu eiginnöfnin er átt við alla núlifandi Íslendinga búsetta hér á landi.
Fjöldatölur miðast við 27. mars 2025.
Röð | Nafn | Fjöldi |
1 | Jón | 4.938 |
2 | Anna | 4.792 |
3 | Guðrún | 4.341 |
4 | Sigurður | 3.974 |
5 | Guðmundur | 3.739 |
6 | Kristín | 3.347 |
7 | Sigríður | 3.069 |
8 | Gunnar | 3.033 |
9 | Margrét | 2.770 |
11 | Helga | 2.664 |
Mynd/pixabay