Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra heldur tónleika í Hvammstangakirkju á morgun, miðvikudaginn 1. maí kl. 15:00.
Stjórnandi kórsins er Ólafur Rúnarsson og undirleikari Elínborg Sigurgeirsdóttir.
Á dagskrá verða létt lög sem vonandi koma áheyrendum í sumarskap.
Söngnemendur úr Tónlistarskóla Húnaþings vestra koma einnig fram á tónleikunum. Veislukaffi í safnaðarheimilinu að loknum tónleikum. Aðgangseyrir kr. 2.500, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Verið velkomin og gleðjist með okkur.
Kór eldri borgara í Húnaþingi vestra