Neyðarlínan heldur upp á 112 daginn í dag, þann 11. febrúar á hverju ári því að dagsetningin 11. 2. minnir okkur á neyðarnúmer allra landsmanna, 112. Það er mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.

Börn geta verið stórkostlegar fyrirmyndir þegar kemur að öryggi og forvörnum og verður því þema 112 dagsins 2025 Börn og öryggi.

Börn geta verið fyrirmyndir á marga vegu í daglegu lífi, eins og þegar þau ganga með endurskinsmerki eða eru með hjálm þegar þau hjóla. Þegar þau spenna beltin í bíl og auðvitað þegar þau minna fullorðna á að vera ekki í símanum við akstur. Börn eru líka aðstoðarmenn slökkviliðs í leik- og grunnskóla og eru frábærir innhringjendur þegar þau hringja í Neyðarlínuna.

Opið hús verður hjá Björgunarsveitinni Strákum á Siglufirði á milli kl. 17:00-18:30 og hjá Björgunarsveitinni Tindi í Ólafsfirði frá kl. 16:30-18:00.

Mynd/112