SamFestingurinn 2019 fer fram dagana 22. – 23. mars í Laugardalshöll.

Félagsmiðstöðin Neon í Fjallabyggð sendir hljómsveitina “Ronja og ræningjarnir” sem mun flytja lagið Back to Black, sem Amy Winehouse gaf út á sínum tíma.

Sjá einnig eldri frétt á trolli.is um NorðurOrg sem fram fór í Ólafsfirði á dögunum, en þar má meðal annars hlusta á upptöku af beinni útsendingu FM Trölla frá keppninni NorðurOrg.

Föstudaginn 22. mars er ball frá 18.00-22.50 og laugardaginn 23. mars er Söngkeppni Samfés frá kl. 13.00-15.30 í beinni útsendingu á RÚV.
SamFestingurinn er árleg hátíð Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi.

Þetta er í fjórtánda sinn sem SamFestingurinn er haldinn með því sniði að á föstudagskvöldi er ball og á laugardeginum er Söngkeppni Samfés.

Ungmennaráð Samfés, sem er skipað átján lýðræðislega kjörnum fulltrúum, hefur haft veg og vanda að dagskránni, og völdu þau plötusnúðana og hljómsveitirnar sem koma fram á SamFestingnum.

Á Söngkeppninni gefst unglingum kostur á að koma fram á stóra sviðinu og syngja fyrir framan jafnaldra sína af landinu. Undankeppnir hafa farið fram í öllum landshlutum og þrjátíu atriði verið valin til þátttöku. Það má því með sanni segja að efnilegustu söngvarar og söngkonur landsins komi fram á Söngkeppni Samfés.

SamFestingurinn er án efa stærsti vímulausi viðburðinn af þessu tagi sem haldinn er á Íslandi.

Í Laugardalshöllina mæta um 4.500 unglingar á aldrinum 13-16 ára (efstu bekkir grunnskólans) eða um 30% unglinga landsins, alls staðar að af landinu.

Reglur Samfés gilda á SamFestingnum.

  • 1 starfsmaður á 17 unglinga.
  • Allir unglingar skulu koma og fara með rútu með sinni félagmiðstöð (enginn á eigin vegum).
  • Viðburðurinn er tóbaks, áfengis og vímuefnalaus.