Alls voru 67.719 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 3.134 einstaklinga frá 1. desember 2022 eða um 4,9%.

Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 30,4% frá 1. desember 2022 og voru í byrjun mánaðarins alls 2.954 úkraínskir ríkisborgarar skráðir til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá, sem er fjölgun um 689 einstaklinga á tímabilinu. Sömuleiðis hefur orðið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Rúmeníu eða um 8,2% sem eru 297 einstaklingar á umræddu tímabili og eru nú 3.920 einstaklingar með rúmenskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 774 einstaklinga eða um 3,3% og eru pólskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi nú 24.070 samtals.

Einnig er áhugavert að skoða hlutfallslega fjölgunfrá 1. desember 2022 til 1. apríl, þar ber að nefna að hlutfallslega fjölgun frá Palestínu er 27,4% sem eru 85 einstaklingar og hlutfallsleg fjölgun frá Belarús er 36,7% eða 11 einstaklingar.

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 448 einstaklinga eða um 0,1%. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. apríl 2023 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2022.

Heimild/Þjóðskrá
Mynd/pixabay