Eins og flestum er kunnugt þá hefur Covid smitum fjölgað hratt í Norðurlandi eystra undanfarna daga og er staðan sínu verst á Akureyri, þar eru nú 78 virk smit og 990 í sóttkví. Þá eru 5 virk smit á Húsavík og 223 í sóttkví sem hefur talsverð áhrif á allt samfélagið.

Aðgerðarstjórn LSNE hefur miklar áhyggjur af stöðunni og telur nauðsynlegt að allir hugi að sinni stöðu og vegi og meti hvað hver geti gert til að stoppa þá útbreiðslu sem er í gangi í dag. Ljóst er að sá aldur sem hvað mest virðist smitast í dag eru börn og unglingar á grunnskólaaldri, þá sér í lagi sá aldur sem ekki er bólusettur.

Aðgerðarstjórn LSNE vill því beina þeim tilmælum til þeirra sem hafa með æskulýðs- , íþrótta- og félagstörf að gera hjá börnum og unglingum á grunnskólaaldri að fresta viðburðum, fundum og æfingum fram yfir næstu helgi. Með því vonumst við til að ná það vel utan um þessa stöðu sem uppi er að þá verði hægt að mælast til þess að slík starfsemi komist aftur af stað.

Í tengslum við þetta hefur aðgerðarstjórn LSNE átt samtal við bæjar- og sveitarstjóra á Norðurlandi eystra sem telja að sama skapi nauðsynlegt að beina þessum tilmælum inn í samfélagið.

Foreldrar eru hvattir til að huga vel að börnum sínum og fylgjast vel með fá þau einhver einkenni Covid og fara þá með þau í skimun.