Höfðinglegur styrkur til Velferðarsjóðs Húnaþings vestra

Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund stjórnar Velferðarsjóðs Húnaþings vestra í gær, fimmtudaginn 4. desember og færði sjóðnum að gjöf kr. 600.000.

Ólöf hefur unnið að gerð bútasaums-, púða, dúka og teppa undanfarin ár og hafa þau verið afar vinsæl bæði innan og utan héraðs.

Styrktarfjárhæð Ólafar til Velferðarsjóðsins er líkt og undanfarin átta ár afrakstur sölu umliðins árs og hefur Ólöf styrkt sjóðinn afar myndarlega í gegnum tíðina eða kr. 5.300.000 á níu árum.

Stjórn Velferðarsjóðs er bæði hrærð og glöð yfir þessu göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki.

Mynd/Húnaþing vestra