Vetrarstemning á Siglufirði í dag - Myndasafn

Vetrarstemning er á Siglufirði í dag eftir mikla snjókomu síðustu daga. Snjórinn hefur sett sterkan svip á bæinn og víða er orðið hvítklætt, líkt og myndir bera með sér.

Veðrið er fremur stillt í dag en austanvindur mælist um 2 metrar á sekúndu. Lítilsháttar snjókoma er á svæðinu og hitinn er í kringum mínus eitt stig.

Meðfylgjandi myndir voru teknar snemma í morgun af Vilmundi Ægi Eðvarðssyni og sýna vel hvernig Siglufjörður lítur út við þessar vetraraðstæður.