Hálka og svell virtust ekki koma að sök hjá þessum hressa gönguhópi á Ólafsfirði sem lét ekkert stoppa sig. Þrátt fyrir sleipar götur og gangstéttir var haldið af stað af öryggi og augljósri æfingu, enda greinilegt að þetta fólk kann sitt fag þegar kemur að svelli.

Í færslu á Facebook og meðfylgjandi mynd segir Björn Þór Ólafsson frá því að öll í hópnum hafi lært að skauta í denn. Þegar svellið var hvað mest voru hendur einfaldlega settar aftur fyrir bak og skautað áfram, líkt og þetta væri bara enn einn venjulegur dagur á Ólafsfirði.

Á meðfylgjandi mynd má sjá, talið frá vinstri, Jörgína Ólafsfóttir, Guðrún frá Helgustöðum, Sturlaugur Kristjánsson, Margrét Toft, Þorsteinn frá Helgustöðum, Rögnvaldur Ingólfsson, Soffía Eggertsdóttir og Ásta Sigurbjörnsdóttir.

Mynd: Björn Þór Ólafsson, birt með góðfúslegu leyfi.