Hljómsveitin Ástarpungarnir sá um tónlistina á tveimur þorrablótum sem haldin voru um helgina og var stemmingin góð bæði austur á landi og norðan heiða. Hljómsveitin kom fram á þorrablóti Vopnfirðinga í félagsheimilinu Miklagarði og einnig á Ketilási, þar sem gestir tóku vel undir og kvöldið einkenndist af miklu fjöri og gleði.
Ástarpungarnir hafa um nokkurt skeið verið duglegir að halda utan um verkefnin sín á samfélagsmiðlum og ekki síst á Facebook, þar sem þeir birta reglulega létt og skemmtileg myndbönd frá viðburðum sem hljómsveitin kemur fram á.
Sjá einnig: Ástarpungarnir setja jólastemninguna í gang með daglegum lögum fram að jólum
Þorrablótin um helgina voru þar engin undantekning, en hljómsveitin birti myndband sem gefur góða mynd af fjörinu og andrúmsloftinu sem einkenndi kvöldin.
Myndbandið má sjá hér að neðan og sýnir vel hversu mikil góð stemning var í salnum, en meðfylgjandi mynd er skjáskot úr myndbandinu.



