Um helgina fór fram Bikarmót Skíðasambands Íslands í skíðagöngu í Hlíðarfjalli á Akureyri. Þar átti Skíðafélag Ólafsfjarðar (SÓ) sjö keppendur sem stóðu sig með miklum sóma og skiluðu félaginu afar flottum árangri. Þetta kemur fram á heimasíðu Skíðafélags Ólafsfjarðar.

Keppnin hófst á föstudag með sprettgöngu þar sem keppt var með frjálsri aðferð. Á laugardeginum var síðan gengið með hefðbundinni aðferð og ræst út með einstaklingsstarti. Mótinu lauk í dag með keppni í frjálsri aðferð þar sem ræst var út með hópstarti. Samkvæmt upplýsingum frá SÓ stóðu keppendur sig afar vel og má meðal annars rekja árangurinn til vel heppnaðrar æfingaferðar til Noregs nýverið.

Í flokki 13 til 14 ára kepptu Adríana Diljá Hólm Elísdóttir, Þórey Edda Rúnarsdóttir, Gréta Mjöll Magnúsdóttir, Óli Björn Þorvaldsson, Kamilla Maddý Heimisdóttir og Dagbjört Lilja Jóhannsdóttir. Í flokki 15 til 16 ára keppti Björg Glóa Heimisdóttir.

Gréta Mjöll Magnúsdóttir náði frábærum árangri og hafnaði í öðru sæti bæði á föstudag og laugardag. Þá tryggði Björg Glóa Heimisdóttir sér þriðja sætið í keppninni í dag. Um virkilega flottan árangur er að ræða, ekki síst í ljósi þess að fyrir suma keppendanna var þetta meðal fyrstu þátttöku þeirra á Bikarmóti á vegum Skíðasambands Íslands.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Gréta Mjöll Magnúsdóttir, Óli Björn Þorvaldsson, Björg Glóa Heimisdóttir, Kamilla Maddý Heimisdóttir, Þórey Edda Rúnarsdóttir og Adríana Diljá Hólm Elísdóttir.

Mynd: skiol.is