Milljón dollara spaghetti

  • 450 gr nautahakk (eða 1 bakki)
  • 1 dós pastasósa
  • 225 gr rjómaostur
  • 1/4 bolli sýrður rjómi
  • 225 gr kotasæla
  • 110 gr smjör
  • 225 gr spaghetti
  • rifinn cheddar ostur

.

Hitið ofninn í 180°.

Sjóðið spaghetti eftir leiðbeiningum á pakkningu. Hrærið saman rjómaosti, sýrðum rjóma og kotasælu þar til það hefur blandast mjög vel.

Steikið nautahakkið á pönnu og kryddið eftir smekk. Hellið vökvanum frá og brúnið hakkið vel. Hellið pastasósu yfir og látið sjóða við vægan hita í smá stund.

.

Leggið smjörklípur í botninn á eldföstu móti (ef smjörið er kalt er gott að nota ostaskera í verkið). Setjið helminginn af spaghettíinu í botninn á eldfasta mótinu. Hellið rjómaostablöndunni yfir spaghettíið og dreifið vel úr henni.

Setjið afganginn af spaghettíinu yfir rjómaostablönduna, leggið nokkrar smjörklípur yfir og endið á að hella hakksósunni yfir spaghettíið.  Dreifið vel úr hakksósunni og bakið í 30 mínútur. Eftir 30 mínútur er rétturinn tekinn úr ofninum og rifnum cheddar osti dreift yfir. Setjið réttinn aftur í ofninn í 15 mínútur.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit