Í dag, mánudaginn 2. febrúar, rennur út frestur til að panta miða á þorrablót Ólafsfirðingafélagsins, sem fram fer föstudaginn 6. febrúar klukkan 19:30 á Café Catalina í Kópavogi. Greitt verður á staðnum og er miðaverð 7.990 krónur á mann.
Skráning fer fram í gegnum messenger á facebooksíðu Jóninu Björnsdóttur, með tölvupósti á netfangið jonina1sigrun@gmail.com eða í síma 848 4179.
Boðið verður upp á lambalæri og meðlæti fyrir þá sem ekki borða þorramat. Anna Rós Jóhannesdóttir frá Kálfsárkoti mun flytja minni karla, en enn er óskað eftir sjálfboðaliða til að flytja minni kvenna.
Einnig er tekið á móti tillögum að atriðum og óvæntum uppákomum, svo sem sögum, söng eða gamanmálum, og eru slík framlög vel þegin. Markmiðið er að gera kvöldið sem ánægjulegast fyrir alla gesti.



