Þrír keppendur frá Pílufélagi Fjallabyggðar héldu suður til Reykjanesbæjar um helgina þar sem þeir tóku þátt í Dartung-móti í pílukasti. Keppendurnir voru þeir Björn Helgi Ingimarsson, Mikael Ingi Jónsson og Garðar Áki Halldórsson, og stóðu þeir sig allir með prýði á mótinu.
Björn Helgi Ingimarsson átti afar sterkt mót og sýndi frábæra spilamennsku í riðlakeppninni þar sem hann vann þrjá af fjórum leikjum, alla með 3.0 sigri, og skilaði þar 62,47 average. Í 32 manna úrslitum hélt hann áfram á sömu braut og vann einnig þar 3.0 með öruggum hætti. Í 16 manna úrslitum háði Björn jafnan og spennandi leik sem lauk með 3.2 tapi. Heilt yfir átti hann mjög flott mót og vert er að taka fram að hann endaði með næsthæsta average mótsins, 61,81, sem undirstrikar þær miklu framfarir sem hann hefur sýnt að undanförnu.
Mikael Ingi Jónsson endaði í þriðja sæti í sínum riðli þar sem hann vann einn leik og spilaði á 50,56 average. Í 32 manna úrslitum lenti hann í miklum baráttuleik þar sem hann var kominn 2.0 undir, en sýndi mikinn karakter, sneri leiknum sér í vil og vann að lokum 3.2. Í 16 manna úrslitum mætti hann afar sterkum mótherja í öðrum hörkuleik sem lauk einnig með 3.2 tapi. Þetta var fyrsta Dartung-mót Mikaels og óhætt er að segja að hann hafi komið skemmtilega á óvart með spilamennsku sinni, þó þeir sem hafa fylgst með æfingum hans undanfarið séu ekki hissa á þessum árangri.
Garðar Áki Halldórsson sigraði sinn riðil með því að vinna báða leiki sína og spilaði þar á 37,52 average. Í 32 manna úrslitum mætti hann hörkuspilara og lenti fljótt 2.0 undir, en sýndi mikla seiglu, jafnaði leikinn í 2.2 áður en mótherjinn kláraði leikinn með glæsilegu útkasti. Þar með lauk keppni Garðars að þessu sinni. Heilt yfir átti hann þó einnig mjög gott mót og ljóst er að framfarir hans eru miklar um þessar mundir.
Að mati félagsins var þetta afar ánægjulegt mót fyrir keppendur Pílufélags Fjallabyggðar og ljóst að framtíðin er björt hjá þessum efnilegu pílukösturum.
Myndir: facebook / Pílufélag Fjallabyggðar






