Íþróttaverkefnið Allir með stendur fyrir opinni íþróttaæfingu fyrir börn á grunnskólaaldri sem þurfa stuðningsþarfir, föstudaginn 21. febrúar í íþróttahúsinu á Ólafsfirði. Æfingin fer fram klukkan 12.30 til 13.30 og er öllum að kostnaðarlausu.
Markmið æfingarinnar er að skapa öruggt og jákvætt æfingaumhverfi þar sem börn fá tækifæri til að prófa íþróttir á sínum eigin forsendum. Æfingarnar eru sérstaklega hugsaðar fyrir börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning, henta betur í minni hópum og njóta þess að hafa aukinn aðgang að þjálfurum á æfingatíma.
Ekki þarf að skrá sig fyrirfram, heldur er nóg að mæta. Að æfingu lokinni mun lukkuhjól Allir með snúast og fá þátttakendur hressingu í lok æfingar. Fjölskyldur eru hvattar til að koma með og upplifa gleði og samveru í kringum hreyfingu og leik.
Æfingin er samstarfsverkefni íþróttahéraðs á Norðurlandi eystra, aðildarfélaga og sveitarfélaga og er hluti af markvissri vinnu að aukinni þátttöku barna í íþróttastarfi. Nánari upplýsingar um verkefnið Allir með má finna á heimasíðu þess með því að smella hér.



