Minningarsjóður Guðnýjar Júlíönu Ólafsdóttur Stefáns, Gullusjóður, var stofnaður árið 2012 til stuðnings starfsemi HSN í Fjallabyggð. Starfsfólk HSN í Fjallabyggð hélt þakkarkaffi þar sem aðstandendum sjóðsins voru færðar innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning síðustu ár.

Hollvinir, sjóðir og samtök víða um land hafa um árabil verið ómetanlegur hluti af þróun og framþróun heilbrigðisþjónustu með rausnarlegum gjöfum og framlögum sem hafa styrkt starfsemina og bætt aðbúnað skjólstæðinga og starfsfólks. Einn slíkur er Minningarsjóður Guðnýjar Stefáns, eða Gullusjóður, sem stofnaður var árið 2012 í minningu Guðnýjar Júlíönu Ólafsdóttur Stefáns til stuðnings starfsemi HSN í Fjallabyggð. Nýverið var haldið þakkarkaffi hjá HSN í Fjallabyggð á Siglufirði þar sem aðstandendum sjóðsins voru færðar innilegar þakkir fyrir ómetanlegan stuðning við heilbrigðisþjónustuna í Fjallabyggð undanfarin ár.

Guðný Júlíana, eða Gulla eins og hún var kölluð, fæddist á Leyningi í Eyjafirði árið 1929, en hún ólst upp á Akureyri hjá fósturforeldrum sínum, Stefáni og Gíslínu, ásamt fjórum fóstursystkinum. Gulla veiktist ung af Akureyrarveikinni og glímdi við afleiðingar hennar ævina á enda. Hún flutti nítján ára gömul til Siglufjarðar með unnusta sínum Friðriki Guðmundssyni, þar sem þau bjuggu alla tíð. Friðrik lést í sjóslysi árið 1973. Þeim varð ekki barna auðið. Guðný vann sem verkakona alla sína tíð, meðal annars við síldarsöltun og fiskvinnslu. Síðustu fimmtán ár ævi sinnar dvaldi hún á hjúkrunarheimili HSN á Siglufirði. Hún leit á starfsfólk stofnunarinnar sem hluta af sinni fjölskyldu, sýndi því einlægan áhuga og fylgdist með högum þess og barna þeirra.

Þegar hún lést árið 2012, 83 ára að aldri, kom í ljós að hún hafði ánafnað HSN Fjallabyggð talsverðum fjármunum. Þeir urðu grunnurinn að stofnun Minningarsjóðs Guðnýjar Stefáns.

Sjóðurinn hefur allar götur síðan stutt við starfsemina með veglegum styrkjum til kaupa á nauðsynlegum búnaði. Meðal annars hefur hann fjármagnað röntgentæki, lífsmarkamæli fyrir skiptistofu, hjartaþrekprófstæki, vökvadælur, öndunarhjálpartæki og fjölbreyttan búnað til að bæta lífsgæði skjólstæðinga, svo sem heyrnartól fyrir sjónvörp, sturtubekk, sjúkrarúm, dýnur, húsgögn og gagnvirkan skjávarpa til félagslegrar og andlegrar örvunar.

Við hjá HSN erum afar þakklát stjórn Gullusjóðs fyrir þann hlýja og rausnarlega stuðning sem þau hafa veitt í gegnum árin. Verður Guðnýjar ætíð minnst með virðingu og þakklæti. Velvild þeirra hefur skipt sköpum fyrir skjólstæðinga og starfsfólk HSN.

Myndir: af facebook síðu HSN