Í dag, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlegur víða um land. Markmið dagsins er að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer.

Fjallabyggð
Í dag, miðvikudaginn 11. febrúar verður opið hús hjá Björgunarsveitinni Tind á Ólafsfirði milli kl. 17:00 – 19:00. Slysavarnadeildin Hyrna mun bjóða upp á vöfflur og kaffi. Sjúkraflutningar HSN, Lögreglan Norðurlandi Eystra og Slökkvilið Fjallabyggðar verða á staðnum með tæki og tól sem hægt verður að skoða.

Þema 112 dagsins árið 2026 er 30 ára afmæli Neyðarlínunnar. Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.

Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2.

· Hvar er atburðurinn?
· Hver ert þú?
· Hvað gerðist?
· Hvenær gerðist atburðurinn?

Það verða einnig eftirfarandi viðburðir á Norðurlandi vestra.

Húnabyggð
Miðvikudaginn 11. febrúar verður bláljósaakstur, Björguarfélagið Blanda, sjúkraflutningar HSN, Lögreglan á Norðurlandi Vestra og Slökkvilið Húnabyggðar taka þátt. Ekið er af stað frá húsnæði Björgunarfélagsins Blöndu kl. 17:00 í gegnum þéttbýlið. Frá 17:30 – 18:30 verða svo tæki viðbragðsaðila til sýnis við húsnæði björgunarfélagsins.

Húnaþing vestra
Miðvikudaginn 11. febrúar kl. 16:30 fara Brunavarnir Húnaþings Vestra, sjúkraflutningar HVE og Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga í bláljósaakstur um bæinn. Í kjölfarið verður opið hús á slökkvistöðinni og húsnæði björgunarsveitarinnar.

Skagafjörður
Miðvikudaginn 11. febrúar munu Brunavarnir Skagafjarðar, Björgunarsveitin Skagfirðingasveit og Lögreglan Norðurlandi Vestra heimsækja leikskóla á Sauðárkróki.

Skagaströnd
Miðvikudaginn 11. febrúar kl. 09:45 verða Slökkvilið Skagastrandar, Björgunarsveitin Strönd og Lögreglan Norðurlandi Vestra með bláljósaakstur í gegnum þéttbýlið. Kl. 10:00 verða tæki viðbragðsaðila til sýnis við íþróttarhúsið.

Á höfuðborgarsvæðinu verður 112 dagurinn haldinn í Smáralind með dagskrá frá kl. 15:00 – 18:00 Þar munu viðbragðsaðilar kynna starf sitt og veita fræðslu um öryggi og viðbrögð ásamt því að Björnis Brunabangsi kíkir í heimsókn, Dómsmálaráðherra flytur ávarp og Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna veitir verðlaun í árlegri eldvarnargetraun sem þriðjubekkingar taka þátt í.

Í öllum landshlutun verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni dagsins. Á Akureyri verður sameiginleg dagskrá viðbragðsaðila við Glerártorg sunnudaginn 15. febrúar frá kl. 12:00 – 15:00 en þar mun Rauði Kross Íslands útnefna skyndihjálparmanneskjur ársins 2025.

Landsmenn eru hvattir til að  fylgjast með samfélagsmiðlum og bæjarmiðlum í sínu héraði og taka virkan þátt í 112 deginum.

Að auki er Dagur íslenska táknmálsins haldinn hátíðlegur 11. febrúar ár hvert, og verður dagskráin í Reykjavík og á Akureyri túlkuð á táknmáli.

Nánari upplýsingar um viðburði á hverjum stað má finna á heimasíðu Neyðarlínunnar: https://www.112.is/112-dagurinn