Rétt upp úr kl. átta í morgun, 1. nóvember 2023, barst slökkviliði Brunavarna Húnaþings vesta tilkynning um eld í iðnaðarhúsnæði á Hvammstanga. Fyrstu upplýsingar voru óljósar og óstaðfest hvort einhver væri í húsinu.

Allt tiltækt lið var kallað út en alls tóku 15 manns frá slökkviliðinu þátt í verkefninu. Þegar á staðinn var komið lagði svartan reykjarmökk frá einu bili í húsinu. Kom strax í ljós að bilið var mannlaust en gaskútar og mikill eldsmatur voru í rýminu. Notaðar voru hitamyndavélar til þess að staðsetja eldinn og gekk greiðlega að slökkva. Farið var í að reykræsta rýmið og einnig annað rými við hliðina. Ljóst er að um töluvert tjón er að ræða vegna reyks og sóts.

Óhætt er að segja að ekki mátti miklu muna í tíma að verr færi, slökkvilið var hins vegar fljótt á staðinn og tókst að ráða niðurlögum eldsins á skömmum tíma.

Eldsupptök eru óljós á þessu stigi en lögreglan à Norðurlandi vestra fer með rannsókn brunans.

Mynd/Húnaþing vestra