Í síðustu viku barst Matvælastofnun tilkynning frá Tilraunastöð HÍ að Keldum, þess efnis að sýni úr sláturfé hafi reynst jákvætt m.t.t. riðu. Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr tveggja vetra á frá bænum Stórhóli í Húnaþingi Vestra. Á bænum eru um 600 kindur.

Á hverju hausti er tekinn fjöldi sýna úr fullorðnu fé sem sent er til slátrunar og þau rannsökuð m.t.t. riðu. Þetta sýni var eitt af slíkum sýnum. Ekki hafði borið á neinum sjúkdómseinkennum í viðkomandi kind né öðrum á bænum.

Bærinn tilheyrir Húna- og Skagahólfi. Riða greindist síðast á bænum árið 2006 en á nágrannabæ hans árið 2021.

Undirbúningur aðgerða er hafinn. Faraldsfræðilegum upplýsingum verður safnað og áhersla lögð á að rekja hvert kindur af bænum hafa verið fluttar.