Í dag, fimmtudaginn 2. nóvember 2023 hefur göngu sína nýr þáttur á FM Trölla.

Þátturinn nefnist The Storm Stereo Show og verður á dagskrá FM Trölla á fimmtudögum kl. 17:00

Lydia Athanasopoulou
Lydia Athanasopoulou

Stjórnandi þáttarins er Lydia Christina Athanasopoulou í Studio 8 á Siglufirði.

Lydia fluttist til Íslands fyrir nokkru og býr nú og starfar á Siglufirði. Hún hefur margra ára reynslu í þáttagerð og öðrum fjölmiðlastörfum.

Fylgist með The Storm Stereo Show á FM Trölla í dag kl. 17 – 18.

FM Trölli er á FM 103.7 MHz á Tröllaskaga, í Skagafirði og á Hvammstanga og nágrenni.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á trolli.is, á vefsíðunni radio.garden og á tunein.com

Minnum einnig á skip.trolli.is  sem er sérstakur lágbitastraumur fyrir minni netsambönd.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.