Hafnarstjóri lagði fram og fór yfir tölur um landaðan afla með samanburði við fyrra ár á 145. fundi hafnarstjórnar Fjallabyggðar.

Á Siglufirði höfðu þann 16. apríl 2825 tonn borist á land í 77 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 3820 tonn í 90 löndunum.

Á Ólafsfirði höfðu 57 tonn borist á land í 43 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 62 tonn í 35 löndunum.