Opið hús verður hjá Björgunarsveitinni Strákum að Tjarnargötu á Siglufirði í dag frá klukkan 17 til 19 í tilefni 112 dagsins. Gestum gefst kostur á að skoða tæki og búnað sveitarinnar og prófa vinsæla klifurvegginn sem verður opinn á meðan á heimsókninni stendur.
Léttar veitingar verða í boði fyrir börn og fullorðna og eru allir velkomnir að líta við.
Sjá einnig: 112 dagurinn haldinn hátíðlegur í Fjallabyggð og víða um land í dag
Mynd: facebook / Björgunarsveitin Strákar



